Fyrirmyndarverkefni

205 m² einbýlishús á einni hæð með bílgeymslu og upptekinni lofthæð

Sunnutröð á Akureyri

Rúmgott einbýlishús á einni hæð undir valmaþaki. Bjart, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi undir upptekinni lofthæð, fimm svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innbyggð bílgeymsla.

205 m² einlyft einbýlishús við Sunnutröð á Akureyri með valmaþaki, ljósgrárri klæðningu og hvítum gluggumÞrívíddarmynd (hönnun) af 205 m² einbýlishúsi með svörtu valmaþaki, grárri klæðningu og lerki í innskoti við inngangÞrívíddarmynd (hönnun) af 205 m² einbýlishúsi séð frá bílgeymsluhlið
Stærð hönnunar
205,3 m²
Svefnherbergi
5
Bílgeymsla
31,5 m²
Hjónaherbergi
16,1 m²

Yfirbyggt innskot við inngang er klætt lerki og gefur húsinu hlýlegan svip. Herbergi eru með 2,5 m lofthæð en alrými og bílgeymsla eru með upptekin loft. Húsið er hannað með öllum eiginleikum og kröfum heilsárshúss.

Þetta er klassísk teikning sem hefur verið byggð áður. Húsið á myndinni stendur við Sunnutröð á Akureyri. Engin tvö hús eru nákvæmlega eins: húsið og grunnmyndin bjóða upp á ýmsa möguleika, til dæmis að spegla húsið svo bílgeymslan verði hægra megin, snúa stofu og eldhúsi, stækka útsýnisglugga og þannig mætti lengi telja.

Húsið er afhent á byggingarstigi III og uppsetningarteymi verksmiðjunnar reisir það á byggingarstað. Grunnmynd er byggð á teikningu Stefáns Ingólfssonar arkitekts.

  • Verksmiðjuframleiddar timbureiningar, framleiddar innandyra óháð veðri
  • Valmaþak klætt svörtu bárujárni
  • Grá Swisspearl trefjasementsklæðning, lerki í innskoti við inngang
  • Ál-tré gluggar án krossrimla
  • Thermolift bílskúrshurð, rafdrifin
  • Upptekin loft í alrými og bílgeymslu, 2,5 m lofthæð í herbergjum
  • Brunaveggur EI60 milli bílgeymslu og íbúðar, upp í þak
Grunnmynd 205 m² einbýlishúss með stærðum herbergja
Suðurhlið 205 m² húss með inngangi og bílskúrshurð
Suðurhlið – inngangur
Norðurhlið 205 m² húss
Norðurhlið
Austurhlið 205 m² húss
Austurhlið
Vesturhlið 205 m² húss
Vesturhlið
Langsnið um bílgeymslu, herbergi, anddyri og alrými
Langsnið um bílgeymslu, herbergi, anddyri og alrými