Einlyft einingahús með dökkri klæðningu og lýsingu að kvöldi

Emerald Einingahús · Yfir 25 ár á íslenskum markaði

Vandað heilsárshús beint frá verksmiðju. Reist á þinni lóð.

Við sjáum um allt ferlið: hönnun, innflutning og uppsetningu. Þú færð heildarkostnaðaráætlun, þér að kostnaðarlausu, áður en þú skuldbindur þig til nokkurs.

Frítt og án skuldbindingar.

Fáðu frítt kostnaðarmat

Án skuldbindingar. Við svörum fljótt.

Ferlið

Frá hugmynd að húsi í fjórum skýrum skrefum

  1. 01

    Frí kostnaðaráætlun

    Segðu okkur frá lóðinni og húsinu sem þú sérð fyrir þér. Þú færð heildarkostnaðaráætlun og raunhæfan tímaramma, þér að kostnaðarlausu.

  2. 02

    Hönnun og tilboð

    Við vinnum með völdum arkitektum, raflagnahönnuðum og verkfræðingum sem bjóða viðskiptavinum okkar sérkjör. Verksmiðjan gerir formlegt tilboð.

  3. 03

    Framleiðsla og afhending

    Húsið er framleitt í verksmiðju og flutt á byggingarstað. Afhending er um 5 mánuðum eftir staðfestingu pöntunar.

  4. 04

    Uppsetning

    Uppsetningarteymi verksmiðjunnar reisir húsið á um 10 vikum, þegar sökklar eru fullfrágengnir og úttekt lokið.

Einlyft hús með bílskúr á byggingarstigi
Hús á byggingarstigi
Dökkt hús með bílskúr í byggingu á Akureyri
Í byggingu, Akureyri 2024
Fullbúið grátt hús með bílskúr og steyptu plani
Fullbúið hús

Greiðslur og ábyrgðir

Staðfestingargreiðsla er 20% af samningsverði en eftirstöðvar greiðast í réttu hlutfalli samkvæmt samningi. Greiðslur og tryggingar fara beint milli banka kaupanda og banka framleiðanda, án milliliða. Verð frá erlendum framleiðanda er tengt gengi evru á greiðsludegi og getur því hækkað eða lækkað á samningstímanum.

Húsin okkar

Hús sem standast íslenskt veður. Og tímans tönn.

Húseiningarnar eru framleiddar í verksmiðju við stöðug gæðaskilyrði og afhendast einangraðar með ísettum gluggum. Þannig verður húsið þétt, vandað og fljótt í uppsetningu, hvar sem er á landinu.

Íbúðarhús

Einbýlishús, parhús og raðhús fyrir heilsársbúsetu. Hönnuð fyrir íslenskar aðstæður og í samræmi við íslenska byggingarreglugerð. Einangrunargildi er jafnan umfram staðalkröfur.

Sumarhús og frístundahús

Hlý og vönduð timburhús fyrir sumarlandið. Við sjáum um flutning frá verksmiðju, leyfi og uppsetningu á lóðinni.

Hús í dreifbýli

Lausnir fyrir bújarðir og lóðir utan þéttbýlis, með sömu ábyrgð og yfirsýn frá fyrstu kostnaðaráætlun til lokafrágangs.

Gluggar, hurðir og klæðning

Húseiningar afhendast með ísettum gluggum sem eru CE-merktir og vottaðir fyrir íslenskar aðstæður. Þú velur á milli PVC-glugga, timburglugga og timburglugga með álkápu. Allar gerðirnar uppfylla kröfur á Íslandi. Timburgluggar og álklæddir timburgluggar eru jafnan dýrari kostur en PVC (plast). Við flytjum inn margar gerðir af gluggum og hurðum fyrir einstaklinga og verktaka.

Bjálkahús, CLT-hús og skemmur

Auk timbureininga bjóðum við bjálkahús, CLT-hús og skemmur frá virtum framleiðendum. Bjálkahúsin eru framleidd í Litháen en CLT-húsin og skemmurnar í Lettlandi. Skemmurnar fást bæði með stálgrind og úr límtré. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum réttu lausnina.

Verkefni

Raunveruleg hús. Raunverulegar fjölskyldur.

Hús sem við höfum útvegað og reist víða um land, hvert með sínum svip.

Raðhús með viðarklæðningu og einhalla þaki©
Raðhús, einhalla þak, Árskógssandi
Tveggja hæða fjórbýlishús með svölum og viðarsúlum í vetrarlandslagi©
Fjórbýlishús hannað af okkar samstarfsaðila
Einlyft einbýlishús í Mosfellsbæ með ljósri láréttri klæðningu og valmaþaki úr dökkum málmi©
Einbýlishús yfir 200 m², Mosfellsbær
Einlyft einbýlishús með valmaþaki og fjallasýn©
Einbýlishús, valmaþak, Hörgársveit
Loftmynd af dökku raðhúsi með rauðum smáhýsum í Eyjafjarðarsveit©
Raðhús, Eyjafjarðarsveit
Einingahús með stórum glerveggjum og láréttri klæðningu©
Stórir gluggar og lárétt klæðning
Einlyft hús með dökkri lóðréttri klæðningu og einhalla þakiHús með dökkri klæðningu og gólfsíðum gluggumHús með dökkri lóðréttri klæðningu og stórum gluggum, einhalla þak
©
Dökk klæðning og einhalla þak

Fyrirmyndarverkefni

130 m² heilsárshús á einni hæð með bílgeymslu

Vandað og einfalt heilsárshús. Húsið stendur við Selmerkurveg í Mosfellsbæ, nálægt Hafravatni. Það er 130 m² í heild, þar af um 93,6 m² íbúðarrými og bílgeymsla.

130 m² einlyft hús með dökkgrárri klæðningu og málmþaki við Selmerkurveg130 m² hús með innbyggðri bílgeymslu og bílskúrshurð
Heildarstærð
130 m²
Þar af bílgeymsla
36,4 m²
Svefnherbergi
3

Þetta er einfalt og hefðbundið hús fyrir þá sem vilja vandað heilsárshús án óþarfa flækjustigs. Húsið er hannað með öllum eiginleikum og kröfum heilsárshúss.

Einangrun er meiri en krafist er: 150 mm steinull í útveggjum og 210 mm í þaki. Gæðin felast þó í fleiru. Gluggarnir eru hágæða gluggar úr álklæddu timbri, og bílskúrshurðin fylgir húsinu frá Thermolift, með brautum, rafdrifnum mótor og fjarstýringu.

Útlit og grunnmynd 130 m² húss með stærðum herbergja

Fyrirmyndarverkefni

180 m² einbýlishús á einni hæð með bílgeymslu

Einfalt og hefðbundið einbýlishús á einni hæð með einhalla þaki og innbyggðri bílgeymslu. Húsið stendur við Hlíðarmóa á Akureyri og er 180 m² í heild.

180 m² einlyft hús með dökkri álklæðningu og einhalla þaki á Akureyri180 m² hús með stórum gluggum og dökkri álklæðningu180 m² hús á byggingarstigi með Tyvek vindpappa og bílskúrshurð180 m² hús á byggingarstigi með gólfsíðum gluggum
Heildarstærð
180 m²
Þar af bílgeymsla
29,7 m²
Svefnherbergi
4

Opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, þvottahús og rúmgott anddyri. Húsið er hannað með öllum eiginleikum og kröfum heilsárshúss.

  • Einangrun umfram staðal
  • Gluggar og hurðir úr timbri með álkápu
  • Klætt með áli að utan í dökkum lit
  • Einhalla þak
  • Öryggisgler í gólfsíðum gluggum
  • Sólarvörn í gleri
Útlit og grunnmynd 180 m² húss með stærðum herbergja

Fyrirmyndarverkefni

187 m² einbýlishús á einni hæð með bílgeymslu

Fullbúið einbýlishús á Bakkatúni á Svalbarðseyri með innbyggðri bílgeymslu. Húsið er 187 m² í heild.

187 m² einbýlishús á Svalbarðseyri með valmaþaki úr dökkum málmi, ljósgrárri pússaðri útveggjaklæðningu (Swisspearl) og hvítum gluggum
Heildarstærð
187 m²
Þar af bílgeymsla
41,5 m²
Herbergi
3

Stofa, eldhús, þvottahús, geymsla og rúmgott anddyri. Húsið er hannað með öllum eiginleikum og kröfum heilsárshúss.

  • Valmaþak úr dökkum málmi
  • Ljósgrár pússaður útveggur (Swisspearl)
  • Hvítir gluggar
  • Innbyggð bílgeymsla
Grunnmynd 187 m² húss með stærðum herbergja

Verð

Þú veist hvað þú færð, og hvað það kostar, áður en þú ákveður

Við sýnum þér fyrirfram ítarlega í tilboðum hvað er innifalið og hvað ekki, sem og hvaða kostnaður er breytilegur, til dæmis innréttingar sem keyptar eru á markaði innanlands, eins og hjá IKEA, gólfefni, tækjabúnaður á baðherbergi og salerni og fleira. Þannig getur væntanlegur viðskiptavinur áttað sig á heildarframkvæmdinni. Kostnaðaráætlunin frá okkur er alltaf án endurgjalds.

Dökkt einlyft hús með bílskúr og glæsilegum inngangi

Innifalið í verði frá verksmiðju

  • Framleiðsluteikningar, krossmældar sökkulteikningar og burðarþolsútreikningar eftir landshlutum
  • Verksmiðjuframleiddir útveggir og innveggir með steinullareinangrun, rakavörn og gifsi
  • Utanhússklæðning: formáluð fíbersementsklæðning, 10–12 mm
  • Þak: sperrur eða kraftsperrur, límtrésbitar ef við á, 250 mm steinullareinangrun, þakklæðning og þakdúkur
  • PVC-gluggar með tvöföldu gleri (timburgluggar og álklæddir timburgluggar eru dýrari kostur)
  • Útihurðir (PVC eða viðarhurðir) og rennihurðir úti, eftir vali
  • Allar festingar, skrúfur og vinklar
  • Flutningur til landsins og á byggingarstað, tollar, gjöld og flutningstryggingar
  • Uppsetning: Teymi frá verksmiðju kemur og reisir húsið upp samkvæmt tilboði

Ekki innifalið (kemur fram í kostnaðaráætlun)

  • Þakjárn, rennur og niðurföll (hægt að fá með húsinu)
  • Bílskúrshurð (hægt að fá með húsinu)
  • Innihurðir (samningur við innlendan aðila)
  • Innréttingar og tæki (mælum með innlendum aðila)
  • Gólfefni, sparsl og málning (mælum með innlendum aðila)
  • Sökklar og hitalagnir í sökkul eða plötu (mælum með innlendum aðila)
  • Raflagnir (mælum með innlendum aðila)
  • Arkitekta-, verkfræði- og raflagnateikningar eru jafnan keyptar af samstarfsaðilum Emerald ehf. Einnig er mögulegt að senda okkur eigin teikningar eða teikningar frá öðrum arkitektum.
  • Lóðin

Húsbyggjandi sér um eftirfarandi á framkvæmdatíma

  • Sökkla og lagnir í sökkla
  • Stillansa
  • Skipulag og gott aðgengi á byggingarstað fyrir vinnuvélar og krana
  • Hreinsun á sorpi, öryggismál og tryggingar á byggingarstað
  • Gistingu fyrir 3–4 starfsmenn frá verksmiðju
  • Akstur til og frá Keflavíkurflugvelli
  • Internetaðgang fyrir verkstjóra
  • Heitan mat tvisvar á dag

Af hverju Emerald?

Einn aðili sem heldur utan um allt, frá fyrstu áætlun til lokauppsetningar

Loftmynd af hvítu einlyftu húsi með bílskúr og hellulagðri innkeyrslu
01

Beint frá verksmiðju, án milliliða

Húsið er keypt beint af verksmiðju samkvæmt samningi, án milliliða. Álagning okkar er sýnileg og gagnsæ og í samræmi við vinnu okkar og ráðgjöf frá því að hús er pantað, tollafgreitt og reist.

02

Engin óvænt útgjöld

Þú sérð fyrirfram hvað er innifalið og hvað er breytilegur kostnaður, til dæmis innréttingar og gólfefni, ásamt raunhæfum tímaramma og öryggi.

03

Evrópsk gæði, löguð að Íslandi

Húsin eru hönnuð fyrir íslenskar aðstæður, byggingarreglugerðir og veðurfar, með einangrun umfram kröfur. Við leggjum okkur fram um að bjóða hámarksgæði á hagstæðu verði.

04

Einn tengiliður frá upphafi til enda

Hönnun, verkfræðingar, leyfi, flutningur og uppsetning af teymi verksmiðjunnar. Allt á einum stað.

05

Þeir sem þekkja húsið reisa það

Teymi frá verksmiðjunni kemur til landsins og reisir húsið samkvæmt tilboði. Þetta er þjálfað fólk frá verksmiðjunni sem þekkir framleiðsluna og samsetningu hússins og fylgir eftir öllum atriðum við uppsetningu og frágang.

06

Styttri tími frá ákvörðun til innflutnings

Framleiðsla hússins í verksmiðju getur farið fram á meðan sökklar eru undirbúnir á lóðinni, án þess að slá af kröfum um gæði og vottun.

Fá frítt kostnaðarmat

Spurningar

Algengar spurningar

Um Emerald

Hver er Emerald?

Emerald Einingahús flytur inn og samræmir tæknilega verksmiðjuframleidd timbureiningahús. Við höfum yfir 25 ár á íslenskum markaði og sjáum um allt ferlið, allt frá fyrsta kostnaðarmati til fullbúins húss.

Byggið þið húsin sjálf?

Húsin eru framleidd í evrópskum timburhúsaverksmiðjum. Við flytjum þau inn, lögum þau að íslenskum kröfum og samræmum verkefnið í heild á Íslandi.

Af hverju að velja Emerald?

Yfir 25 ár á íslenskum markaði. Bein innkaup án milliliða. Gagnsæ kostnaðaráætlun og verð byggt á reynslutölum. Uppsetning í höndum uppsetningarteymis verksmiðjunnar. Hús sem uppfyllir íslenskar kröfur og gott betur. Hágæða gluggar og hurðir. Val um margar gerðir af utanhússklæðningu, til dæmis ál, lerki, thermowood og fíbersement frá Swisspearl. Aukið einangrunargildi. Timburgluggar frá Viking Windows og PVC gluggar frá Rehau. Loftaþiljur og ofnæmisvottaðar loft- og veggjaþiljur frá Forestia. Vottað timbur.

Afhending og byggingarstig

Á hvaða byggingarstigi afhendið þið húsið?

Við afhendum húsið á byggingarstigi III. Verksmiðjan sendir húsið til Íslands og uppsetningarteymi verksmiðjunnar reisir það á tilbúnum grunni. Við gerum heildarkostnaðaráætlun sem byggir á reynslutölum.

Hvað er ekki innifalið í afhendingu á byggingarstigi III?

Ekki innifalið er: - sökklar, lagnir og plata - múrverk og málning - innréttingar og gólfefni - raflagnir Þessir liðir eru teknir með í heildarkostnaðaráætlun svo þú sjáir raunverulegan heildarkostnað áður en þú tekur ákvörðun.

Hvaða fagfólk vinnur með okkur að hönnun?

Við störfum í samstarfi við valda arkitekta, raflagnahönnuði og verkfræðinga sem bjóða sérkjör fyrir viðskiptavini okkar.

Hvernig er fermetrafjöldi húss mældur?

Stærð hússins miðast við stærð hönnunarinnar. Við förum yfir stærð og nýtingu rýmisins með þér þegar við gerum kostnaðaráætlunina.

Hvað er byggingarlýsing og hver gerir hana?

Arkitekt þinn gerir byggingarlýsingu með upplýsingum um gerð glugga og hurða, klæðningu og fleira. Við notum hana sem grunn að formlegu tilboði frá verksmiðju.

Vörur

Hvaða gerðir húsa bjóðið þið?

Íbúðarhús (einbýlishús, parhús og raðhús), frístunda- og sumarhús, CLT-timburhús og gámaeiningar til sérstakra nota. Við útvegum einnig glugga og hurðir.

Henta húsin íslensku veðurfari og byggingarreglugerð?

Já. Hvert hús er hannað með íslenskum arkitektum og verkfræðingum og lagað að íslenskum byggingarreglum og veðurfari. Kröfur um vind- og snjóálag eru mismunandi eftir landsvæðum á Íslandi og útreikningar eru gerðir fyrir þinn stað.

Get ég lagt fram eigin útfærslu eða breytt húsinu?

Já. Þú mátt gjarnan leggja fram þína eigin útfærslu og óskir um breytingar á húsinu. Við aðlögum hugmyndirnar innan ramma byggingarreglugerðar og byggingarskilmála.

Eru byggingarskilmálar mismunandi eftir lóðum?

Næstum hver einasta lóð hefur sína eigin skilmála, til dæmis um hæð húss, þakform, grunnflöt og fjarlægð frá lóðamörkum. Hönnuðir okkar og verkfræðingar fylgja kröfunum fyrir þína lóð og laga hönnunina að þeim, svo þú þarft ekki að fara sjálf/ur í gegnum reglurnar.

Er hægt að búa í húsinu allt árið?

Já. Húsin eru byggð samkvæmt íslenskum kröfum um heilsársbúsetu. Sumarhús frá okkur er hannað með öllum eiginleikum og kröfum heilsárshúss.

Hvaða efni eru notuð?

Efnisþættir hússins, svo sem timbur, gluggar og hurðir, utanhússklæðning og þakklæðning, til dæmis málmklæðning eða IcoPal-þakdúkur, hafa hver sína vottun og CE-merkingu og uppfylla íslenskar kröfur.

Hversu vel standast gluggarnir regn og vind?

Gluggar eru flokkaðir eftir þeim þrýstingi í pasköllum (Pa) sem þeir þola án þess að leka. Því hærri sem talan er, því þéttari er glugginn gagnvart vatni og vindi. Lágmarkskrafa til glugga á Íslandi er 1100 Pa. Gluggarnir okkar eru í flokki 1200 til 1600 Pa og uppfylla því lágmarkskröfuna með góðum afgangi. Rétt gildi fyrir þitt hús fer eftir staðsetningu og veðuráraun, sem verkfræðingur okkar tekur tillit til í vindálagsútreikningum.

Efni og gæði

Hversu vel eru húsin einangruð?

Öll hús sem við afhendum uppfylla íslenskar einangrunarkröfur og gott betur. Það er ekki valkvæð uppfærsla. Einangrunargildi er jafnan aukið umfram staðalkröfur.

Hvaða klæðningu get ég valið á húsið?

Þú getur valið úr mörgum gerðum af utanhússklæðningu, til dæmis: Ál. Lerki. Thermowood. Fíbersement frá Swisspearl.

Hvernig gluggar og hurðir fylgja húsunum?

Húsin eru afhent með hágæða gluggum og hurðum. Í boði eru: Timburgluggar frá Viking Windows. PVC gluggar frá Rehau.

Hvaða innanhússklæðningu er hægt að fá?

Við bjóðum loftaþiljur og ofnæmisvottaðar loft- og veggjaþiljur frá Forestia.

Hvað er lífsferilsgreining?

Nýjar reglur gera kröfu um lífsferilsgreiningu. Hún felur í sér ítarlegar upplýsingar um endingartíma og fótspor efnis í húsunum. Sigurður H. Ólafsson, byggingafræðingur og samstarfsaðili okkar, skilar inn lífsferilsgreiningunni. Greitt er fyrir hana sérstaklega.

Er timbrið vottað?

Já, við notum vottað timbur í húsin. Timbrið er með PEFC og FSC vottun.

Ferlið

Hvernig gengur ferlið fyrir sig, skref fyrir skref?

1. Fyrirspurn: Þú segir okkur hvað þú hefur í huga: stærð, gerð, staðsetningu og kostnaðarramma. 2. Frítt kostnaðarmat: Við sendum þér fyrsta kostnaðarmat þér að kostnaðarlausu. 3. Verðtilboð: Þegar hönnun liggur fyrir færðu verðtilboð. 4. Hönnun og leyfi: Hönnuðir okkar og verkfræðingar laga teikningarnar að byggingarreglugerð og skilmálum lóðarinnar. Samstarfsaðili okkar, byggingafræðingur, sér um umsókn um byggingarleyfi og skil á lögformlegum teikningum. Verkfræðingur okkar teiknar grunn og lagnir og gerir vind- og snjóálagsútreikninga fyrir þitt svæði. 5. Framleiðsla og grunnur: Húsið er smíðað í verksmiðju á meðan grunnur er undirbúinn á byggingarstað. 6. Úttekt á grunni: Grunnurinn þarf að vera fullgerður og tekinn út af löggiltum byggingarmeistara áður en einingarnar eru reistar. 7. Flutningur og uppsetning: Við sjáum um flutning til Íslands og verksmiðjuteymið setur húsið upp þegar grunnurinn hefur verið samþykktur. 8. Verkefnastjórn: Við samræmum verkið frá upphafi til enda.

Hversu langan tíma tekur ferlið frá pöntun til fullbúins húss?

Frá staðfestingu pöntunar tekur gerð framleiðsluteikninga, framleiðsla og afhending á byggingarstað um 5 mánuði. Uppsetning tekur svo um 10 vikur. Í tilboðinu færðu skilgreinda tímaáætlun fyrir þitt verkefni.

Þarf grunnurinn að vera tilbúinn áður en húsið er reist?

Já. Grunnurinn þarf að vera fullgerður og tekinn út áður en einingarnar eru reistar. Framleiðsla getur farið fram á meðan grunnurinn er í smíðum, þannig að húsið er tilbúið til sendingar þegar grunnurinn hefur verið samþykktur. Löggiltur byggingarmeistari tekur grunninn út. Verkfræðingur okkar teiknar grunn og lagnir, þannig að verktaki þinn byggir eftir okkar teikningum.

Hafa vind- og snjóálag áhrif á hönnunina?

Já. Kröfur um vind- og snjóálag eru mismunandi eftir svæðum á Íslandi. Verkfræðingur okkar gerir útreikninga á vind- og snjóálagi fyrir þinn stað og hönnunin er löguð að þeim.

Hver sækir um byggingarleyfi?

Samstarfsaðili okkar, byggingafræðingur, sér um umsókn um byggingarleyfi og skil á lögformlegum teikningum, svo þú þarft ekki að sjá um leyfisferlið sjálf/ur.

Hvað þarf ég að undirbúa?

Þú þarft lóð, fullgerðan grunn sem hefur verið tekinn út og tengingar við veitur (vatn, frárennsli og rafmagn).

Verð og greiðslur

Hvað kostar hús?

Verð fer eftir stærð, gerð og útfærslu, svo eitt verð segir lítið. Sendu okkur stutta lýsingu og þú færð heildarkostnaðaráætlun þér að kostnaðarlausu.

Hvernig fæ ég tilboð og hvað með gengi evru?

Tilboðin eru án falinna álagninga, en verðið er ekki fast með tilliti til gengis. Kaupverð hússins og uppsetning þess er í evrum (EUR) og tengist gengi evrunnar á greiðslutíma. Verðið getur því hækkað eða lækkað á samningstíma. Einnig getur innlendur áætlaður kostnaður tekið breytingum til hækkunar eða lækkunar. Emerald hefur leitast við að gera raunhæfar kostnaðaráætlanir sem mark er tekið á. Með útsjónarsemi og sértilboðum reynist oft unnt að lækka kostnað. Greiðslur og ábyrgðir eru milliliðalausar milli viðskiptabanka kaupanda og viðskiptabanka framleiðanda.

Er VSK innifalinn í uppgefnu verði?

Já. Kostnaðarmat og tilboð eru gefin upp með VSK.

Hvað er innifalið í verðinu?

Í verðtilboði kemur nákvæmlega fram hvað er innifalið, svo þú veist hvað verðið nær yfir áður en þú tekur ákvörðun.

Hvernig fara greiðslur fram?

Staðfestingargreiðsla að upphæð 20% af samningsfjárhæð tryggir pöntunina. Eftirstöðvar eru greiddar í hlutfalli við framvindu verkefnisins, eins og kveðið er á um í samningi.

Get ég fengið fjármögnun?

Fjármögnun er samið um milli þín og bankans þíns. Verðtilboð okkar gefur þér skýra mynd til að leggja fyrir bankann þinn. Mikilvægt er að átta sig á raunhæfum heildarkostnaði áður en hafist er handa.

Af hverju er verðið ykkar lægra en almennur byggingarkostnaður á Íslandi?

Við flytjum húsin beint og milliliðalaust inn frá verksmiðju. Húsbyggjandi er skráður kaupandi frá upphafi. Emerald ehf endurselur ekki húseiningarnar. Fyrirtækið er með litla yfirbyggingu og nýtur oft betri samningskjara og sveigjanleika en stærri aðilar.

Flutningur og afhending

Hvernig eru húsin flutt til Íslands?

Við sjáum um alla flutninga, þar á meðal flutning frá verksmiðju til Íslands og afhendingu á byggingarstað.

Er flutningur innifalinn í verðinu?

Flutningar eru innifaldir í tilboðinu. Í tilboðinu kemur nákvæmlega fram hvað er innifalið.

Hversu langan tíma tekur afhending?

Gerð framleiðsluteikninga, framleiðsla og afhending á byggingarstað taka um 5 mánuði frá staðfestingu pöntunar. Í tilboðinu færðu áætlaðan afhendingartíma fyrir þitt verkefni.

Getið þið afhent hvar sem er á Íslandi?

Við þjónum viðskiptavinum um allt land. Tilboðið tekur mið af staðsetningu byggingarstaðar.

Hvað með tryggingar í flutningi og á byggingarstað?

Gengið er sérstaklega úr skugga um að gámar séu tryggðir alla leið, bæði í sjóflutningi og landflutningi. Húsbyggjandi/eigandi þarf sjálfur að kaupa viðeigandi tryggingar á byggingarstað, til dæmis brunatryggingu, slysatryggingu og almenna tjónatryggingu. Við mælum einnig með foktryggingu og vatnstryggingu. Best er að hafa samband við tryggingafélag í tíma og ganga frá tryggingum áður en framkvæmdir hefjast á lóðinni.

Uppsetning

Hver setur húsið upp?

Uppsetningarteymi á vegum verksmiðjunnar kemur til landsins og reisir húsið. Þetta er þjálfað fólk sem þekkir húsið og samsetningu þess og fylgir eftir öllum atriðum við uppsetningu og frágang.

Hversu langan tíma tekur uppsetning?

Uppsetning tekur um 10 vikur. Í verkáætlun sérðu tímasetningar fyrir þitt hús.

Uppfyllir húsið íslenskar kröfur um vottun?

Já. Húsin eru hönnuð samkvæmt íslenskri byggingarreglugerð og sett upp í samræmi við vottunarkröfur.

Ábyrgð, skil og riftun

Fylgir ábyrgð?

Ábyrgðarskilmálar eru tilgreindir í samningi.

Hvað ef ég finn galla eftir afhendingu?

Sendu okkur skriflega tilkynningu með myndum. Við metum málið og sjáum um viðgerð í samræmi við ábyrgðarskilmála samningsins.

Get ég skilað húsi eða hætt við pöntun?

Hús sem eru smíðuð eftir pöntun er ekki hægt að skila eins og hefðbundnum vörum. Skilmálar um riftun eru tilgreindir í samningi.

Þjónusta og samskipti

Hvernig hef ég samband við Emerald?

Netfang: [email protected] Sími: +354 698 0330 Vefsíða: www.emerald.is Heimilisfang: Norðurtún 26, 225 Álftanes

Hversu fljótt svarið þið?

Gunnlaugur svarar fyrirspurnum sjálfur, eins fljótt og kostur er.

Get ég skoðað fullbúið hús eða fengið að sjá dæmi?

Við getum sent þér myndir og raunverulegar umsagnir frá verkefnum sem við höfum lokið.

Ég er nú þegar viðskiptavinur. Við hvern tala ég um mitt verkefni?

Sendu okkur tölvupóst með nafni þínu og heiti verkefnisins og við setjum þig í samband við verkefnastjóra þinn.

Hvernig kem ég kvörtun á framfæri?

Sendu tölvupóst á [email protected] þar sem þú lýsir málinu, með myndum ef við á. Við staðfestum móttöku fljótt og vinnum að lausn.

Fyrstu skref

Hvernig fæ ég frítt kostnaðarmat?

Sendu okkur stutt skilaboð í gegnum eyðublaðið á forsíðunni eða tölvupóst á [email protected] með: - gerð og áætlaðri stærð húss - staðsetningu lóðar - kostnaðarramma - æskilegum tímaramma Við svörum með skýru og fríu kostnaðarmati.

Hafa samband

Fáðu frítt kostnaðarmat á draumahúsinu

Hverju leitar þú að?

Þetta hjálpar okkur að svara þér með réttum upplýsingum og verðupplýsingum.

Hvar ætlarðu að byggja?

Segðu okkur frá verkefninu

Nokkrar setningar duga. Til dæmis: „Um 160 m² heilsárshús fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Lóð nálægt Akureyri. Stefnum á að hefja framkvæmdir næsta sumar.“

HringjaFá kostnaðarmat