Emerald

 

Hús

 

Hér má finna myndir af húsum, og íhlutum s.s. hurðar, stiga, glugga og fleira.

 

Verkferli

 

Hér er lýsing á verkferli þ.e. frá því að tilboð er gert, teikningar og sunduliðun tilboða, efnislýsing. Hvað er kaupandi að fá í tilboði, afhendingartími og greiðsluskilmálar

 

Verðdæmi

 

Hér má finna helstu tölulegar upplýsingar er varða kaup á kanadísku einingahúsi, ásamt áætluðum fjárhæðum við uppsetningu húsa og frágangi. Verð hjá okkur eru betri en víðast annars staðar, þar sem við reiknum hóflega ráðgjafa- og söluþóknun fyrir hvert hús en erum ekki endurseljendur

 

Aðrar vörur

 

Hér má finna aðrar vörur sem Emerald ehf flytur inn og selur á heildsöluverðum, en þar má nefna:

  • Byggingavörur

 

Bæklingar

 

Hér er er hægt að skoða bæklinga af húsum sem við höfum tekið saman. Um er að ræða hugmyndir að húsum ásamt verðum

 

Fréttir

 

Hér er að finna helstu fréttir. Hvað er að gerast hjá fyrirtækinu, nýjungar og fleira

Velkomin
á vefsíðu Emerald ehf.  Emerald ehf hefur sérhæft sig  m.a. í innflutningi og tæknilegri úrvinnslu á kanadískum timbureiningahúsum fyrir íslenskan markað. EMERALD ehf hefur langa reynslu af byggingu timbureiningahúsa á Íslandi og er umboðsaðili DEMTEC INTERNATIONAL á Íslandi..   Húsin eru verksmiðjuframleidd í Kandada skv íslenskum kröfum og stöðlum.  Framleiðandinn hefur sannað sig á afar kröfuhörðum erlendum mörkuðum s.s í Þýskalandi, Sviss, Japan og Íslandi.  Gerðar eru strangar kröfur um efnisval. Emerald ehf hefur átt þátt í þeirri þróun með því að vinna náið með íslenskum arkitektum, verkfræðingum og byggingameisturum við hönnun á húsum fyrir íslenskar aðstæður. EMERALD ehf er brautryðjandi á íslenskum markaði og leitast ávallt við að bjóða hæstu mögulegu efnisgæði. Emerald ehf býður betri verð á markaðnum í dag miðað við efnisval og gæði. Sjá efnisval og verðdæmiEmerald ehf hefur ávallt fullnægt kröfum Rannsóknarstofnunar Byggingariðnaðarins um efnisval og vottanir. Gluggar eru vottaðir af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins með þeirri umsögn að þeir standist vatnsþrýstipróf sem krafist er á Íslandi. Húsin eru einnig vottuð, bæði veggjaeiningar, sperrur og burðarvirki.

EME_0506_400_WEB

Hér að ofan er mynd af rúmlega 187 m2 húsi á Seyðisfirði. Húsið er klætt með Hardi Plank fíbersementsklæðningu. Efnisval er af bestu gerð og samkvæmt íslenskri byggingareglugerð og einangrað með steinull. Húsið er vottað af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins.

Eme_Kvi_400_A_WEB

Framkvæmdir við Kvistavelli 5, Hafnarfirði, en þeim lauk í janúar 2007. Húsið er klætt með Nova Brik formsteini.

Kaupendur geta skoðað á internetinu ýmsar gerðir húsa og fengið hugmyndir að síðari útfærslu.  Við mælum sérstaklega með neðangreindum og virtum kanadískum arkitektafyrirtækjum. Þau eru hugsuð sem hugmyndabanki. Arkitekt okkar útfærir hugmyndir kaupanda og aðlagar að íslenskum aðstæðum og kröfum.

Smellið á þessi arkitektafyrirtæki:

Til að breyta ferfetum í fermetra:

    • Margfaldið með 0,0929
    • Dæmi: 2153 sq.ft x 0,0929 = 200 m2

Til að breyta fermetrum í ferfet:

    • Margfaldið með 10,7639
    • Dæmi: 200 m2 x 10,7639 = 2153 sq.ft

Verð húsanna er mun betra en áður hefur þekkst á Íslandi.  Það hefur sannað sig að um mun lægri byggingarkostnað er að ræða en opinberar tölur um byggingarkostnað á hefðbundnum íslenskum steinhúsum og timburhúsum segja til um og miðaðar eru við almennan byggingakostnað á Íslandi.

Stór þáttur í því er að uppsetningartími húsanna er skammur, verðlag hefur verið stöðugt í Kanada, hófleg umsýsluþóknun umboðsaðila Emerald ehf og reynsla.

Útveggir og innveggir koma tilbúnir til ásetningar á fyrirliggjandi grunn. Húsin eru verksmiðjuframleidd, en verulegur munur er á því að fjárfesta í versmiðjuframleiddu húsi með öllum íhlutum annars vegar, eða að kaupa niðursagað efni í hús til smíða á byggingarstað hinsvegar, en það á þá sérstaklega við um uppsetningartíma sem lengist verulega ef um staðbyggt hús er að ræða.

Emerald ehf getur hinsvegar boðið seinni valkostinn sé þess óskað þ.e. niðursagaðan efnispakka í hús til smíða á byggingarstað og lækkar þá fermetraverð húss umtalsvert en á móti kemur lengri uppsetningartími og aukinn kostnaður. Smellið hér til að sjá verð á niðursöguðu smíðaefni í hús frá Kanada ásamt fylgihlutum, en þá er fermetraverð mun lægra miðað við afhendingu á Stór-Reykjavíkursvæðinu með flutningi, tollum og gjöldum.  Í slíkum efnispakka eru sperrur (kraftsperrur) forsmíðaðar líkt og í einingahúsunum.

Emerald ehf gerir áætlað verðtilboð í hús skv hugmyndum og útlitsteikningum og veitir almenna ráðgjöf við endanlegt efnisval. Emerald ehf útvegar byggingameistara, verkfræðing og arkitekt sé þess óskað. Uppsetningartilboð og verkkostnaðartilboð eru gerð af viðkomandi verktökum. Hægt er að fá kanadíska smiði til uppsetninga á húsum á kostnað og ábyrgð kaupanda. Í slíkum tilfellum kaupir húsbyggjandi húsið með uppsetningu.

EME22_0001

AkuVall_B_600_WEB

Helgugrund 6 utlit

DSCN0252

AkuMar06Vall_C_600_WEB

ágúst 2006 016

Eme_hvoll-1_WEB

DSCN0593

DSCN0589

DSCN0824

DSCN0404

DSCN0407

DSCN0413

DSCN1034

2007-03-18_001002

2274avl

30m2sumahus

abc

img_525410972002 SG Eldhus2

img_525410972002 SG Eldhus3

img_2220112862002 SG Eldhus

[Heim] [Hús] [Verkferli] [Verðdæmi] [Aðrar Vörur] [Emerald ehf] [Fréttir]
EME22_0001

Hafið samband við  okkur með tölvupósti, hringið eða komið í heimsókn
Emerald ehf  Tel +(354) 565 9400 & +(354) 698 0330 Fax +(354) 565 9401

Framleiðandi húsanna er aðili að eftirtöldum stofnunum er varðar framleiðslu og útflutning