|
Dagur 3 Útveggir eru komnir á áður steypta sökkla og tryggilega festir. Útveggir koma tilbúnir í einingum samsettir úr, grind 140mm (2x6”), krossvið, einangrun, vatns- og vindvörn og lektum. Á milli stoða í burðarvirkinu er millibilið 406 mm í “miðja/miðja”, sem er efnismeira en íslensku byggingareglugerðin segir til um. Húsið hvílir á gagnvarðri 140 mm láréttri grunnstoð “reim” sem boltuð er niður í sökkulinn áður en veggjaeiningar eru festar. Skv íslenskum kröfum má bil á milli burðarstoða vera 600 mm (60 cm). Það má því fullyrða að kanadísku staðlarnir hvað varðar efnismagn timburs í húsunum fer langt yfir íslensk viðmiðunarmörk
|