Byggingu húss við Kvistavelli 5 lokið. Við óskum nýjum eigendum til hamingju með vandað hús frá DEMTEC í Kanada.
Byggingu 200 m2 húss í Aðaldal lokið. Óskum nýjum eigendum til hamingju með vandað hús frá DEMTEC í Kanada.
Uppsetning hófst á glæsilegu 300 m2 húsi á Akureyri.
Framleiðsla er hafin á húsum í Árborg, Mosfellsbæ, Stykkishólmi og Neskaupstað. Verða þau afhent nýjum eigendum til uppsetningar eftir um 9 - 11 vikur. Við þökkum viðskiptavinum frábærar viðtökur á Íslandi.
Fjöldi annarra glæsilegra húsa eru í vinnslu og verða afhent vor og sumar 2007
Nóvember 2006
Hafist handa við að reisa vandað hús að Kvistavöllum 5, í Hafnarfirði. Húsum hefur verið vel tekið, enda hvergi til sparað í efnisgæðum. Fleiri hús munu rísa í Hafnarfirði á næstunni. Gert er ráð fyrir að flutt verði inn í húsið í janúar 2007.
Hafist handa við að reisa hús í Aðaldal, Húsavík. Gert er ráð fyrir að húsið verði fullbúið um mánaðarmót janúar/febrúar 2007.
Hægt er að byggja allan ársins hring þar sem uppsetning gengur hratt fyrir sig
Maí 2006 - frétt
Þann 17 maí s.l. var hafist handa við jarðvinnu að nýju sýningarhúsi á vegum Emerald ehf sem Vélaleiga Húsavíkur ehf byggir að Lyngbrekku 13 á Húsavík.Það er Vélaleigan sjálf í samvinnu við Alverk ehf í Aðaldal sem að tók grunninn að húsinu. Í næstu viku mun Aðalsteinn Skarphéðinsson byggingameistari hefjast handa við uppslátt að sökkli hússins.
Húsið kemur til landsins í byrjun ágúst og mun verða til sölumeðferðar á fasteignasölunni Eignaþingi á Húsavík.
Guðmundur Vilhjálmsson umboðsmaður Emerald á Húsavík er jafnframt aðaleigandi og framkvæmdastjóri Vélaleigu Húsavíkur.
Lyngbrekka 13, Húsavík - jarðvinnuframkvæmdir
Apríl 2006 - frétt
“Seyðfirðingar eru nú aftur farnir að byggja sér hús. Einkaaðilar hafa ekki byggt hús á staðnum í um 17 ár.....” Sjá nánar frétt í bæjarfréttum
Við hjá Emerald ehf óskum nýjum kaupendum innilega til hamingju með nýtt og glæsilegt hús, en húsið var reist í apríl 2006.