|
VERKSMIÐJUFAMLEITT EININGAHÚS - KR 43.000 m2 komið á byggingarstað í Reykjavík
Húsið er framleitt í verksmiðju undir sérstöku gæðaeftirliti og byggingahlutar hússins eru fyrirfram númeraðir. Þar sem byggingareiningarnar (útveggir og innveggir) eru framleiddir í verksmiðju í Kanada og ekki smíðaðar á byggingarstað er uppsetningartími húss mun styttri. Ennfremur koma flestir gluggar ísettir í útveggjaeiningarnar. Ísetning og frágangur er samkvæmt íslenskum stöðlum.
Algengt verð miðað við vandað einbýlishús komið á byggingarstað á Stór Reykjavíkursvæðinu er frá kr 43.000,- m2. Verð er háð efnisvali t.d. Eikarhurðir að innan í stað venjulegra og gengisbreytingum á kanadískum dollar. Gengi kanada dollars er hagstætt (janúar 2007). Verðlag í Kanada hefur verið stöðugt á undanförnum árum
Verksmiðjuframleitt einingahús (útveggir tilbúnir þ.e grind, krossviður, steinull, lektur, raflagnagrind, vatns- og vindvarnarlag TYVEK að utan, byggingaplast að innan) sem styttir uppsetningartíma og frágang húss varlega áætlað um helming. Innveggir og sperrur eru einnig verksmiðjuframleiddir, tilbúnir til uppsetningar.
- Teikning framleiðanda húss (Útlitsteikning og grunnteikning)
- Einangrunarull, vatnsdúkur, byggingaplast og lektur tilbúnar ásettar veggjaeiningum
- Raflagnagrindur fyrir allt húsið
- Fyrirfram númeraðir byggingahlutar tilbúnir
- Þakklæðning 19.1 mm krossviður eða 16 mm krossviður (annað efni hæfir ekki neglinu á stalla- eða bárustáli).
- Asfaltskífur á þak
- Tjörupappi undir asfaltskífur
- Frágangsefni þaks s.s. álkantar og rennur
- Polyethylene rakavarnarlag TYVEK eða sambærilegt
- 13 mm Krossviður í ysta lagi útveggja
- Útiklæðning smellið til að sjá Nova Brik, Canexel, Hardie Plank (fjöldi annarra gerða í boði)
- Gluggar PVC með 4 mm K Gleri, Argon fyllt (fjöldi annarra gerða í boði smellið hér til að sjá aðra valkosti)
- Allar hurðar inni og úti ásamt skápahurðum (walk in closets)
- Allar læsingar og búnaður fyrir hurðar og bílskúrshurð
- Allir kverklistar (einnig gólflistar en ekki gólfefnið sjálft)
- Allir naglar og skrúfur fyrir húsið
- Harðviðarstigar sérsmíðaðir eftir máli
- Gæðainnréttingar í baðherbergi og eldhús
- Gifsklæðning 16 mm, ásamt fylgihlutum s.s. skrúfum og listum
- Flutningur, tollur og virðisaukaskattur komið á byggingarstað á Stór Reykjavíkursvæðinu
- Umboðslaun Emerald ehf (söluaðili verkmiðju, ráðgjafi og tengiliður við verkfræðinga, arkitekt og aðra hönnuði)
Smellið hér til að sjá enn ítarlegri sundurliðun efnislista þ.e. hvað er innifalið í verðinu miðað við verksmiðjuframleitt hús (forsmíðaðar einingar í verksmiðju). Allt efni er vottað skv ströngustu kröfum sbr efni í burðarvirki og kraftsperrur. Sundurliðunin er framsett í rafrænu formi PDF skjal.
Ef skjalið er ólæsilegt gætir þú þurft að uppfæra hjá þér Acrobat reader. Ef þú vilt ekki uppfæra Acrobat Reader, smelltu þá hér til að lesa sem html skjal.
Smellið hér til að uppfæra Acrobat Reader.
Smellið hér til að skoða framleiðendur íhluta s.s klæðningar, þakefni, innréttingar ofl
|